Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Myndasyrpa!

Host unlimited photos at slide.com for FREE!

Innskráningar kubbur

Blogg! HA?!?

20. maí 2008 klukkan 11:46
Ég ákvað að henda inn einu bloggi þar sem helltist yfir mig söknuður til Tenerife. Kolla og Thelma hafa allan minn hug núna, mollin og sólin....meirað segja strætóstöðin líka!
Það er nú kannski ekki skrítið þar sem það styttist í tveggja vikna ferð til Tenerife, nánar tiltekið á Playa de las Americas sunnanmeginn á Tenerife þar sem Kolla og Magga búa og eru búnar að opna íslenskan bar skilst mér.
Ég fer vitanlega norður á mínar heimaslóðir þar sem Thelma býr, ég þarf nú að fara í eina eða jafnvel tvær góðar verslunarferðir til Santa Cruz. Maður er jú leiðsögumaðurinn í þessari ferð.

Mig hlakkar svo til að ég get EKKI beðið!

En að öðru, þá er ég búin í prófum og fékk góðar einkunnir
Spænska 7 (fékk reyndar 8 á prófinu en tók ekki eitt annarprófið svo ég lækkaði aðeins í einkunn)
Uppeldisfræði 8
Náttúrufræði 8
Félagsfræði 8
Danska 7 (náði loksins!!)

Þannig að það var tekið gott próflokadjamm síðustu helgi og við stelpurnar fórum jú út að borða. Arnrún flytur suður rétt fyrir afmælið mitt svo það er stefnt á annað djamm næstu helgi þrátt fyrir vinnu alla helgina!
Eg var reyndar búin að boða í eurovision-party þegar ég fattaði að ég er að vinna til 12...hehe well..eftir það þá!

Ég hef ekki meira frá að segja i bili en ég er komin með nýtt hár og er ekkert smá ánægð!
Hlæjandi



ps. Ég á afmæli 26 maí liggaligga láááii!

17. mars 2008 klukkan 19:59
Ég ætlaði að blogga sunnud. síðasta! Ekki í gær heldur síðasta haha...þetta gengur rosa vel hjá mér.

En helgin á undan þessari sem var að líða var alveg geggjuð, fór í sjallann á laugard. og það var svo gaman! Vá ég hef ekki skemmt mér svona vel lengi og ég býst við að næsta helgi verði jafn skemmtileg því þessa helgi vann ég bara en ég er með mjög svo gott vaktarplan fyrir næstu helgi! Svo við Brynja förum bara tvær ábyggilega á djammið því Arnrún litla verður fyrir sunnan og Arnar er á Tenerife að djamma.
En það verður bara stuð, við Brynja kunnum þetta alveg!Hlæjandi

Mér lýst samt ekkert á hvað evran er að verða há, hún er orðin 118 kr. með þessu áframhaldi verður hún komin í 200 kr. áður en við förum út og þá verður nú varla mikið verslað Fýldur Vonum að þetta reddist, annars er bensínið líka að hækka, allar mjólkurvörur, kjöt og svoleiðis en aldrei hækka launin! En við Brynja töluðum um launamál í hálftíma í nótt og það er von á smá hækkun. Vúhú. Annars er ég flutt ÚT!
Er málið að byrja að nota evruna eða?

Ég og mamma ákváðum að raka Blíðu í fyrradag, rétt áður en ég fór í vinnuna. Að sjálfsögðu náðum við ekki að klára þennan loðbolta svo núna er hún eins og hún hafi lent í slátturvél! haha ekki sætt....En við reddum þessu á morgun vonandi. En þannig er mál með vexti að vanalega látum við svæfa hana og raka en hún er orðin svo gömul að hún þolir ekki svæfingar mjög vel svo við ákváðum að gera þetta sjálfar þar sem hún er svo stillt. Og viti menn hún leyfði okkur alveg að raka sig! Algjör hetja.

Erró var samt ekkert alltof sáttur þegar við prufuðum hann svo við hættum við.

En Brynja setti myndirnar sínar á netið svo ég ætla að copya og setja hér inn fyrir hina þá sem ekki skoða myspacið hennar
Brosandi Hún setti myndir frá febrúar og þarsíðustu helgi!

Svo skal ég ath. hvort ég geti tekið myndir á ónýtu myndavélina mína, er ekki annars málið að fara bara í tryggingarnar og fá nýja?

En þetta er orðið langt og leiðinlegt blogg svo ég er að hugsa um að kveðja!

Gleðilega páska!

http://johannamz.blog.is/img/tncache/250x250/c5/johannamz/img/paskaungar.jpg
Svo sæt þessi grey

Það er sko ekkert farið að vora..helv..snjór

04. mars 2008 klukkan 01:19
Oh ég er komin með nóg af snjó, vil fara til Tenerife aftur!

Æi vá hvað ég hef verið ódugleg við að blogga! Fyrirgefið, þetta er hálfskammarlegt þar sem ég hef frá svo mörgu að segja eftir að við fórum suður.

Arnar, Haukur og ég fórum suður þarseinustu helgi (ég er einmitt búin að setja inn myndir) og við fórum á Jesus Christ superstar, George Michael showið og risa party á Nasa. Þetta var án efa besta kvöld lífs míns þó svo ég entist ekki nema til hálf fjögur vegna lélegs úthald á háhæluðum skóm.

Greyið Arnar var svo vænn að koma með mér heim þó svo klukkan væri ekki meira og ég í svona vondu skapi! Kannski því ég var alveg edru og það var svo stappað á Nasa að maður gat ekki andað!

En ég hitti Jógvan sem mig hefur lengi langað til að gera og hann bauð mér, Eriku og Thelmu í eitt skot á barnum og skellti svo á mig koss og ég hef ekki þrifið á mér kynnina síðan...hehe smá djók. En svo var rosalega gaman að hitta Friðrik Ómar enda var hann í svo góðu skapi eftir að hafa unnið Eurovision að það var alveg frábært!

En ég stoppaði nú ekki lengi í Reykjavíkinni heldur fórum við strax heim daginn eftir.

En annars gerði ég mest lítið núna um helgina nema bara að vinna og ég rúntaði með Tönju systir eftir vinnu á laugard. og það var nú mikið af fólki í bænum enda árhátíð Akureyrar.

Á föstudaginn fór ég á sleða með Steina og það var geggjað, fékk að keyra sjálf og þó svo ég segi sjálf frá er ég snilldar ökumaður á þessu tryllitæki haha vonandi er Steini sammála, hann sat fyrir aftan!

En ég held að þetta sé alveg nógu gott blogg miðað við hvað ég er að blogga seint! Og ég er farin í háttinn með hausverk og kokos lykt allstaðar (veit ekki af hverju)

Buenos noches
Koss


http://rhodesian.server101.com/fannfergi_800x600.jpg
Þetta er búið að vera langur og kaldur vetur svo um að gera að smella einni lýsandi um það.

Og aðra af rjómablíðunni á Tenerife

http://www.canarieinfo.com/tenerife.jpg
En þarna mun ég vera 10 júní og Arnar núna 12 mars...svindl!


Farið að vora?

15. febrúar 2008 klukkan 14:32
Það er farið að hlýna, allavegana en þessi snjór að hverfa og maður er ekki frosinn á tám og puttum um leið og maður stígur út.

En það hefur verið mikið að gerast upp á síðkastið, Hildur vinkona varð 22 á laugardaginn og fórum við vinkonurnar plús Elfari út að borða á Greifann. Svo bauð Brynja okkur í teiti hjá sér og svo fórum við á djammið á Kaffi Ak og skemmtum okkur flestar stórvel!:)

Söngkeppnin var í gær og var með eindæmum léleg! Ég er illa svikin fyrir þennan pening sem var rukkað um!

En ég er ein heima þessa helgi og ætla sko að taka það rólega, ég tók mér frí á morgun í vinnunni bæði vegna þess að það eru 3 próf framundan, í spænsku, dönsku og félagsfræði og svo til að slaka á.
Ég er full af kvefi og vibba svo þetta er bara ágætt.
Stelpurnar mínar þær Elín, Kamilla og Sigga ætla að koma til mín í kvöld og horfa á Bandið hans Bubba og hafa smá svona stelpna hitting, það er svo langt síðan við hittumst! Farin að sakna þeirra ógurlega.

Ég sakna líka Tenerife, Thelmu, Kollu, vina minna þarna og bara lífsíns sem ég átti þarna. Ég sakna meirað segja strætóferðanna þegar ég var að fara að hitta annaðhvort Thelmu eða Kollu, að sitja og horfa útum gluggann og sjá lífið. Ég held ég sé með smá heimþrá, Tenerife er orðið annað heimili mitt. Ég get ekki beðið eftir að fara aftur 10 júní segi ég og skrifa með tár í auganu!

Stelpur mínar ég sakna ykkar!


En nóg af drama ég ætla að skella inn myndum
Brosandi

Hafið það gott og góða helgi!

Og það snjóar og snjóar..

02. febrúar 2008 klukkan 18:06
Ég held ég hafi ekki séð svona mikla snjókomu í mörg ár! Þetta er rosalegt, mig langaði rosa á sleða í dag en hafði ekkert far til Steina undan þessu færi!!

En að boltanum, ég er ekki sátt með mína menn enda labbaði ég í burtu þegar ég var komin með nóg, ekkert gekk upp! En þeir náðu þó að jafna á síðustu sek. En Tottenham lék vel, þeir mega þó eiga það en United ekki jafn vel.

En ég átti skemmtilega vakt um daginn, það kom maður í lúgu og ég og Ása fundum þennan áfengisfnyk og okkur fannst fólkið ekki haga sér eins og eðlilegt fólk. Svo við tókum þá ákvörðun að tilkynna um grun um ölvun, jæja það var bara tekið vel í það og þakkað fyrir. Síðan nokkrum mínútum síðan kemur sama fólk í lúgu og vildu bara sjá andlitið á mér! Ég alveg brjáluð og hringdi í lögregluna og spurði hvort það væri leyfilegt að gefa upp hverjir hringja og þeir svöruðu neitandi og spurðu hvort ég vildi tala við þessa lögreglumenn, ég svaraði játandi og þeir tóku niður símanúmerið mitt.

Síðann fyllist salurinn af fólki því rúta kom og allt brjálað að gera. Svo segja stelpurnar " Tinna það er bíll í lúgunni" og allir litu þangað og sáu að það var löggan, ég í miðri afgreiðslu og þá segir Tinna; "Löggan er komin að tala við þig Tinna!" og ég skammaðist mín svo! Enda fóru allir að hlæja, en þá sögðu lögreglumennirnir að maðurinn hefði bara fattað þetta því þeir komu á tveimur bílum að láta hann blása en biðu mig innilegrar afsökunar og ég ætti bara að láta þá vita ef ég myndi lenda í einhverju veseni en ég ætti ekkert að vera hrædd um að hringja og láta vita ef ég grunaði ölvunarakstur.

Síðan var rútan að fara en einn strákur þurfti greinilega að pissa og gat ekki notað klósettið okkar heldur fór á bak við rútuna en fattaði ekki að við sæjum hann! Við springum úr hlátri og Tinna segir mér að spurja hvort honum sé ekki kalt og ég verð eiginlega að gera það og öskra "Æi vinur er þér ekki kalt?" og honum bregður svona rosalega og stekkur inn í rútuna haha!

Þetta var mjög svo hress og skemmtileg vakt, allavegana var mikið fjör.

En nóg um það, djamm í kvöld! Ætlar þú að mæta?

The image “http://growabrain.typepad.com/growabrain/images/beer_bottles.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Íslands blogg?

17. janúar 2008 klukkan 18:52
Ég hef verið að velta fyrir mér hvort ég ætti að halda áfram bloggi þó svo ég sé flutt hingað heim.

Svo ég ákvað að skella inn einu bloggi og sjá hver viðbrögðin verða.

Framvegis verða bara stutt og laggóð blogg enda er ekki frá miklu að segja þar sem það er ekki jafn mikið að gerast hér á Íslandi og úti.

Mig langar nú samt alveg rosalega mikið aftur út í hlýjuna, ég hef séð að það á betur við mig að búa á hlýjum stað heldur en svona köldum. Ég hef verið með kvef síðan ég steig á þetta land og þreytt, mikil vinna, mikið myrkur og skólinn.

En Sigga heldur uppá afmælið sitt núna á laugardaginn svo það verður eitthvað að segja frá eftir helgi og ég gríp myndavélina með. Djammmyndirnar verða vonandi ekki að skornum skammti þó svo ég sé flutt til Íslands.

Tinna kveður


Seinasta bloggið

14. desember 2007 klukkan 17:11
Það er ótrúlegt að ég sé að skrifa seinasta bloggið í ævintýraferð minni.
Þetta er búið, ég er að koma heim i storminn.
Kolla greyið situr á flugvelli í London núna og búin að bíða í marga tíma, öll flug frestuð, ég finn agalega til með henni!

En ég fór og heimsótti Kollu í síðasta sinn á mánud. þar sem ég var búin að vera lasin og ég var þar til miðvikudags. Tókum seinustu djömmin og kvöddum vini okkar þar. Skrítið að nú sé þetta bara búið og ég eigi ekki eftir að sjá þessa krakka hver veit í hvað langan tíma.

Á morgun fer ég svo og hitti Thelmu og kveð hana, við förum eitthvað að versla saman jólagjafir og svona
Brosandi
Svo seinnipart sunnudags keyra Eva og Alan mig suður til Möggu og ég mun gista þar eina nótt og fara síðan snemma mánudagsmorgun í flug.

Síðan er stíf áætlun á Íslandinu, Benni sækir mig á flugvöllinn og hann ætlar að elda handa mér kvöldmat víst og svo fer ég til Ólafar, gisti þar og hún fer með mér í Toys r us að versla jólagjafir handa litlu krúttunum mínum Anítu, Alla og Önnu! Alli átti einmitt afmæli í gær og Benni á afmæli í dag! hehe
En já síðan á þriðjud. tekur fjölskyldan við mér á flugvellinum heima og svo veit ég að ég þarf að vakna snemma á miðvikud. til að hitta Arnrúnu og Brynju því ég þarf að kveðja Arnrúnu. Ekki mikill tími sem ég hef með henni
Gráta

Ég vildi bara þakka öllum æðislega fyrir stuðninginn og ég hefði aldrei getað gert þetta án ykkar þó svo þið hafið ekki einu sinni verið á sömu eyju!
Þetta var ekki sennilega það erfiðasta sem ég hef á ævi minni gert.
En tíminn er búinn að vera fljótur að líða, mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég var grenjandi í símanum að tala við mömmu að ég vildi ekki vera hérna, hehe.

Hlakka til að sjá ykkur öll þegar ég kem heim
Hlæjandi
Komin með brjálaðann fiðring og spenning!



Svona verð ég ánægð að sjá ykkur!

Tinna kveður í síðasta sinn!

Myndir

08. desember 2007 klukkan 02:01
Bara að láta vita að það eru komnar inn nýjar myndir!

Þetta kallar á blogg

05. desember 2007 klukkan 17:06
Góðan dag hvað segið þið þá?
Flestir vita nú að ég er búin að vera meira og minna lasin frá sunnud. og reyndar var orðin fárveik í gær og í dag svo við fórum til læknis í morgun.
Það væri náttúrulega ekki frásögu færandi nema það að ég þurfti að bíða í 2 tíma í ískaldri biðstofu, alveg að frjósa úr kulda og gat ekkert talað. Ég vaknaði nefninlega alveg mállaus í morgun og ég er ekki að ýkja þegar ég segi ALVEG mállaus, ég gat enganvegin kyngt neinu eða neitt.
Mér fannst það nú hálf skrítið að það væri haft svona kalt á biðstofu hjá lækni þar sem fólk er veikt og má nú kannski ekki við því að verða kalt.
En jæja eftir langa bið og erfiðleika með að skrá mig í kerfið hérna var komið að mér.
Ung, myndarleg hjúkka tók á móti mér og skoðaði mig. Hún var sífelt flissandi því ég gat ekki talað, ekkert mjög fagmannaleg. Síðan hóaði hún á lækninn og þau sáu að þetta var ekki streptakokkar heldur einhver annar vírus. Læknaviðbjóðurinn neyddi mig til að reyna að hósta 4x og það var svo sárt að ég hélt ég færi að grenja. Hann var á svo mikilli hraðferð því hann þurfti að fara annað að lækna. Svo hann var frekar pirraður verð ég að segja þegar ég gat ekki hóstað en síðan neyddist ég.

Svo fékk ég sprautu í rassinn. Já, ég sá hjúkkuna taka upp risa sprautu með risa nál, hún setti hana saman fyrir framan mig og gaf henni svona selsbit eins og er alltaf gert þegar vökvinn er settur inní og lét fyrstu dropana sprautast út.
Ég hélt ég yrði ekki eldri, þeir sem þekkja mig vita að ég er er svo hrædd við sprautur að ég geri allt til að komast hjá þeim!
Síðan sagði hún: Bend over and relax
Ég spurði nú hvort ég mætti ekki bara leggjast á magann því ég gæti engan vegin slakað á með rassinn í andlitið á henni. Jújú það var ekkert mál.
Eva var alveg æðisleg, hélt í hendina á mér og gaf mér tissjú ef ég þyrfti að gráta.

Hjúkkan sagði reyndar við Evu að hún ætti að segja mér að þetta yrði mjög vont en Eva harðneitaði því að hún vildi sko ekki hræða mig áður en ég fengi sprautuna svo hún sagði að ég myndi bara finna fyrir smá sting. Það var svosem rétt, þegar sprautan fór inn var það bara smá stingur en þegar kellingafíflið ýtti og ýtti síðan á þar sem hún stakk hélt ég að ég myndi deyja úr sársauka. Ekki veit ég af hverju hún var að þrýsta svona rosalega á þetta en kannski er þetta bara venjan.

Síðan fékk ég uppáskrifaðan lyfseðil fyrir 2 tegundum af lyfjum sem ég þarf að taka í viku. 2 tegundir af risastórum hylkum sem ég þarf að taka 3 á dag!

En ég er nú strax orðin skárri eftir þessa sprautu en ég er smá aum núna en ég er að vonast til að vera orðin nokkuð góð fyrir föstud. svo ég geti kvatt Kollu. Þó svo það verði kannski ekkert djamm og djús á mér get ég nú alveg verið með þeim edrú. Mig langar líka svo til að kveðja alla krakkanna sem við erum búnar að kynnast þarna og svona, svo ætlar Thelma beibíkeik líka að koma með mér! Vííí það er svo langt síðan ég hitti hana að sú tilhugsun ein fær mig til að frískast híhí!
Ætlum út að borða saman og svona á góða veitingastaðin sem Arnar og félagar tóku mig á í sumar
Ullandi
Svo verður pabbi hennar Aríelar kominn og Aríel mun gista hjá vinkonu sinni á föstud. svo Magga getur farið með okkur á tjúttið og svona!
Hlæjandi

En er þetta ekki komið nóg af bloggi í bili, óskið mér góðs bata fyrir föstudag!

The image “http://www.caddylakgraffix.com/images/favorite_sites/favorite_sites_doctor.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


Tinna is out!!


Með hausverk um helgar

29. nóvember 2007 klukkan 20:18
Það er nú ekki enn komin helgi en ég er samt komin með hausverk, kannski fyrir helginni? Allri tónlistinni sem á eftir að öskra í eyrun á mér, allur bassinn sem á eftir að dúndra í hausinn á mér eða kannski bara vegna "the day after" ástandsins, eða jafnvel sú staðreynd að sjónin mín er að versna þá sérstaklega á hægra auganu.

Kannski er það bara því allir eru hálf lasnir hérna og hundleiðinlegir.
Búin að vera pirruð í dag því þetta er búið að óma í hausnum á mér í allan dag; "Tinaaaaa could you help me" eða "Tina can you do..." eða "Tinnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnnna stupid"
Og það að ég hafi verið sett í klukkutímabann í tölvunni vegna þess að sumir þurftu endilega að horfa á einhvern þátt á netinu og hélt því fram að tölvan mín hægði á þættinum, sem hún reyndar gerði því ég var að horfa á sköllóttu kisurnar mínar í webcam og þessi frábæra nettengind þoldi ekki álagið. En það var ekki nóg að slökkva á webcaminu, ég varð að taka tölvuna ÚR sambandi.

En ég nýtti bara tímann og talaði í klukkutíma við mömmu og pabba því ég hef ekkert hringt þessa viku nema á sunnudaginn.

Blíða er fárveik eftir svefnlyfin sem henni var gefið til þess að hægt væri að raka hana en það er svosem eðlilegt því hún er hreinræktuð en feitilíus hvæsir bara og öskrar á gömlu sem slefar.


En seinustu helgi vorum við Kolla frekar óheppnar, ég missti veskið mitt og myndavélin var þar í svo skjárinn er ónýtur en símanum hennar Kollu var stolið. Við erum aular.

Ég fékk að heyra það frá dana að ég væri hvít, já heyrið það. Maður hefur ekkert sólað sig í mánuð ef ekki meira og er orðinn jafn hvítur og þið þarna heima svo ég fer bara í tanning center sem er rétt hjá Kollu haha, tvöfaldur túrbó.

Í dag afrekaði ég það að fara með tvo risastóra kassa á pósthúsið sem síðar verður sent til Íslands. 20 kíló af fötum og skóm.
Það er eins gott að ég verði ekki rukkuð um yfirvigt á flugvellinum!

En ég hef eiginlega ekkert að blogga um, þetta var aðalega fyrir þá sem eru að læra heima fyrir próf og hún Arnrún mín heimtaði blogg, ég hlýði náttúrulega eins og hundur.


The image “http://www.jewelinfo4u.com/images/Gallery/Dog-Necklaces.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

Þó ég efast nú um að þessi hundur myndi hlýða nokkrum sköpuðum hlut híhí


Tinna kveður.


ps. ég skellti inn nýrri skoðanakönnun, spice girls vann hina náttúrulega með yfirburðum!

Me, myself and I

  • Nafn: Tinna Ýr Einisdóttir
  • Netfang: tinnay@msn.com
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Bónus Video og Ak-inn
  • Hjúskaparstaða: Lausu

Myndasyrpa!

Host unlimited photos at slide.com for FREE!

Könnun

Hvað á að gera í sumar?

Það eru..

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...